UPPLÝSINGAR
Persónuvernd
Persónuverndarstefna Birdie
Síðast uppfært 17. september 2026
Birdie Golf ehf., kt. 640823-0110, Grensásvegi 8, 108 Reykjavík, leggur áherslu á örugga og ábyrga meðferð persónuupplýsinga.
Þessi stefna lýsir vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við bókanir, kaup, aðild og notkun á þjónustu Birdie í gegnum boka.birdie.is.
Hvaða upplýsingar vinnum við með?
Við kunnum að vinna með upplýsingar á borð við:
- nafn,
- netfang,
- símanúmer,
- upplýsingar um bókanir og keypta þjónustu,
- upplýsingar um aðild, sérkjör, inneign og gjafabréf,
- upplýsingar um greiðslustöðu og greiðslumáta,
- upplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna samskipta við viðskiptavin.
Við vistum ekki greiðslukortanúmer eða aðrar fullar kortaupplýsingar í bókunarkerfi Birdie.
Tilgangur vinnslu
Upplýsingarnar eru notaðar til að:
- taka við og afgreiða bókanir,
- veita umsamda þjónustu,
- afgreiða greiðslur og endurgreiðslur,
- senda bókunarstaðfestingar, áminningar og nauðsynlegar upplýsingar vegna bókunar,
- auðkenna viðskiptavini sem eiga aðild, inneign eða sérkjör,
- halda utan um viðskiptasögu og uppfylla bókhalds- og lagaskyldur,
- svara fyrirspurnum og veita þjónustu.
Greiðsluupplýsingar
Greiðslur fara í gegnum viðurkennda greiðsluþjónustu Traustpay/PAYSTRAX. Birdie fær upplýsingar um stöðu greiðslu sem nauðsynlegar eru til að staðfesta eða endurgreiða viðskipti en geymir ekki fullar kortaupplýsingar.
Miðlun upplýsinga
Birdie kann að nota þjónustuaðila vegna reksturs bókunarkerfis, greiðslna, hýsingar og tölvupóstsendinga.
Aðgangur slíkra þjónustuaðila að persónuupplýsingum takmarkast við það sem nauðsynlegt er til að veita viðkomandi þjónustu.
Birdie selur ekki persónuupplýsingar viðskiptavina.
Varðveisla upplýsinga
Persónuupplýsingar eru varðveittar eins lengi og nauðsynlegt er vegna þeirra viðskipta eða þjónustu sem þær tengjast og eftir því sem lög og reglur, meðal annars um bókhald, krefjast.
Réttindi einstaklinga
Einstaklingar eiga eftir því sem við á rétt á að:
- fá upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga sinna,
- fá aðgang að upplýsingunum,
- óska eftir leiðréttingu rangra eða ónákvæmra upplýsinga,
- óska eftir eyðingu þegar skilyrði laga fyrir því eru uppfyllt,
- óska eftir takmörkun vinnslu,
- andmæla vinnslu þegar við á.
Einstaklingur getur einnig lagt fram kvörtun til Persónuverndar telji hann vinnslu persónuupplýsinga ekki vera í samræmi við lög.
Samband vegna persónuverndar
Fyrirspurnir varðandi meðferð persónuupplýsinga má senda til:
Birdie Golf ehf.
Grensásvegi 8, 108 Reykjavík
birdie@birdie.is
Sími 773-8789